|
Knattspyrnudeild Leiknis |
|
BloggKnattspyrnudeild Leiknis Fáskrúðsfirði 6.2.2010MarkaleikurÍ gær spiluðum við gegn Sindra í Síldarvinnslubikarnum í sannkölluðum markaleik. Samkomulag var gert fyrir leikinn að við fengum 4 stráka frá KFF til að spila með okkur og þökkum við kærlega fyrir það. Sindramenn skoruðu fyrsta mark leiksins á 16 mínútu en Hilmar jafnaði strax í kjölfarið.Skömmu síðar kom Tadas okkur yfir með góðu marki. Gestirnir gáfust ekki upp og jöfnuðu leikinn. Villi var ekkert á því að láta forystuna af hendi og kom okkur í þrjú tvö og Hilmar bætti um betur skömmu síðar en rétt fyrir lok hálfleiksins jafnaði þjálfari gestanna með frábæru marki. Sóknarlega var þetta líklega það besta sem Leiknir hefur sýnt á vellinum, margar frábærar sóknir og flottur bolti. Mörkin létu standa á sér í seinni hálfleik en þó skoruðu gestirnir eitt og hefðu getað skorað annað úr víti en Óðinn var ekki á sama máli og varði glæsilega. Liðið í gær var þannig að Lex var í marki. Björgvin, Ingólfur, Svanur og Ingimar Guðjón í vörninni. Inn á miðjunni Ingimar Guðm., Tadas og Villi. Á vængjunum Hilmar og Jói og uppi Almar. Á bekknum voru Fannar, Arek, Mateuz, Ævar , Oðinn og Adnan og komu allir við sögu. Á sunnudaginn er svo leikur kl.13 gegn Huginn. Vegna ferðar 3.fl.kk til Reykjavíkur verðum við frekar fáliðaðir en höfum gert samkomulag við Huginn og KFF um að fá fleiri lánsmenn frá KFF. Hópurinn á sunnudaginn: Lexi, Björgvin, Ingólfur, Svanur, Ingimar Guðm., Almar, Hilmar, Ævar, Adnan, Jói, Sveinn, Hákon, Bjarki og Jóhann Atli. Óðinn kemur ef hann getur. VJ Flettingar í dag: 114 Gestir í dag: 27 Flettingar í gær: 201 Gestir í gær: 47 Samtals flettingar: 451130 Samtals gestir: 124158 Tölur uppfærðar: 21.3.2010 14:33:23 |
Vafraðu umTenglar
Eldra efni Flettingar í dag: 114 Gestir í dag: 27 Flettingar í gær: 201 Gestir í gær: 47 Samtals flettingar: 451130 Samtals gestir: 124158 Tölur uppfærðar: 21.3.2010 14:33:23 |