|
Knattspyrnudeild Leiknis |
|
Færslur: 2012 Febrúar25.02.2012 02:17Aðalfundur knattspyrnudeildarAðalfundur knattspyrnudeildar Leiknis verður haldinn í fundarsal slökkvistöðvarinnar miðvikudaginn 7. marz, kl 21:00. Dagskrá; venjuleg aðalfundarstörf. Allir velkomnir svo lengi sem húsrúm leifir og eldvarnarreglugerð heimilar. Foreldrar, áhugamenn og iðkendur; komið og ausið úr skálum reiði ykkar, við munum hlusta og jafnvel svara. Veitingar ??? Stjórn knattspyrnudeildar Skrifað af má 19.02.2012 12:00KFF/Leiknir - HötturÍ dag spilar meistaraflokkur kvenna æfingaleik við Hött í Fjarðabyggðarhöllinni kl. 14.00 Skrifað af G.Rós 16.02.2012 17:35Leikur á föstudagskvöldNæsti leikur í Síldarvinnslubikarnum er á morgun - föstudaginn 17. febrúar - kl 19:00 í Höllinni, gegn Sindra. Skrifað af má 13.02.2012 21:49Riðlarnir í 1. deild kvenna KSÍ hefur nú birt riðlana í 1. deild kvenna. A-riðill lítur svona út: Fjarðabyggð/Leiknir, Fjölnir, Haukar, Höttur, ÍA, ÍR, Sindri og Þróttur R. Tveir átta liða riðlar og 14 leikir á lið, alveg eins og hjá strákunum, meira að segja tveir útileikir hér fyrir austan en fimm á höfuðborgarsvæðinu, eins og hjá þeim. Það eru meira að segja komin drög að niðurröðun, en hún á pottþétt eftir að breytast mikið. Hér er planið hjá konunum: http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=26845 Og hérna hjá körlunum: http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=26846 Skrifað af má 11.02.2012 17:22Fjölgun deilda samþykkt. 66. ársþing KSÍ samþykkti rétt í þessu tillögu þess efnis að fjölga landsdeildum í knattspyrnu karla um eina, við bætist 5ta deildin - þe 4ða deild. 3ja deild verður skipuð 10 liðum, en 5ta deild þeim sem ekki eiga lið í fjórum efstu.Þessi breyting kemur til framkvæmda árið 2013 og mun árangur í fjórðu deildinni í sumar ráða því hvaða lið ,,halda sæti sínu" í deildinni og hvaða lið færast niður. Hins vegar var samþykkt á þinginu að riðlarnir í 3ju deildinni verða jafnir að stærð í sumar og ef engin lið draga sig út þegar þau sjá fyrirkomulagið þá verða 8 lið í þeim öllum. D-riðillinn verður skipaður eftirtöldum liðum: ...... trúnaðarmál þangað til á morgun, sunnudag.... Huginn, Einherji, Álftanes, Augnablik, Björninn, KH og Skínandi. Björninn er tengdur Fjölni, KH (Knattspyrnuf. Hlíðarendi) Val - Daði Már Steinsson lék með þeim í fyrra, Augnablik og Breiðablik en Hilmar Freyr lék með Augnabliki sl sumar sem lánsmaður frá Blikum og Skínandi er B-lið Stjörnunnar í Garðabæ. Í stjórnarkjöri náðu þeir kjöri sem við studdum, þe Rúnar Arnarson Keflvíkingur frá Stöðvarfirði og Gísli Gíslason af Skaganum. Þórsarinn Unnsteinn Jónsson getur þakkað andstöðu sinni við fjölgun deilda að hann náði ekki kjöri. Kjartan Bragi var fulltrúi Leiknis á þinginu og steig að sjálfsögðu í pontu og tjáði sig um deildamálið. En sem sagt, flottu ársþingi lokið og við getum verið ánægðir Leiknismenn. Skrifað af má 10.02.2012 22:21Tap fyrir KFFLeiknir lék annan leik sinn í Síldarvinnslubikarnum í kvöld við KFF. Leikurinn var nokkuð jafn en KFF heilt yfir sterkari aðilinn. Þeir skoruð tvö mörk í fyrri hálfleik, það fyrra eftir að Óðinn missti fyrirgjöf fyrir fætur Hákonar og það síðara eftir að knettinum var skotið í hönd Svans inn í teig og víti dæmt. Við sköpuðum okkur ekki mikið en þó slapp Baldur í gegn í fyrri hálfleik, en settann fram hjá úr góðu færi. Þá slapp Ási í gegn í síðari hálfleik en var stöðvaður með tæklingu, spurning í hvaða röð fætur og bolti voru tekin. Rautt kort og aukaspyrna, eða ekkert, þarna er efinn. Leiknisliðið: Óðinn, Arek, Svanur, Almar (Símon), Gummi, Fannar, Humar (Sebastían)(Ingimar gamli), Ási og Marri, Baldur og Norbert. Ingimar Humar meiddist um miðjan fyrri hálfleik og varð að fara útaf og Almar meiddist um miðjan seinni hálfleikinn. Eins og í leiknum gegn Hetti var síðari hálfleikurinn betri en sá fyrri. KFF náði aldrei að opna vörnina og fékk mörkin á silfurfati. Á móti sköpuðum við okkur ekki mikið. Kjúllarnir Gummi og Fannar voru flottir og Marri stóð vel fyrir sínu. Vörnin var í heild ágæt en mætti vera ákveðnari að keyra út þegar pressan er losuð og boltinn sendur fram. Ási sótti sig og barðist vel í seinni hálfleik, Óðinn stóð sig vel ef frá eru talin tvö tilvik í fyrri hálfleik þegar hann hélt ekki boltum sem hann á alltaf að halda. Samvinna Baldurs og Norberts mætti vera betri og verður það örugglega eftir ca 10 kíló. Við söknuðum ma Villa og Björgvins Stefáns. KFF-lið leit vel út í fyrri hálfleik, en það var fyrst og fremst vegna þess að við leifðum þeim það. Markvörðurinn nýi og Martin Sindri voru þeirra bestir. Dómararnir stóðu sig vel. Amen. Skrifað af má 09.02.2012 10:37Mfl. kvk - KFF/Leiknir - SindriMeistaraflokkur kvenna lék æfingaleik við Sindra síðastliðin laugardag. Leiknar voru 3x35 mínútur. Liðið var þannig skipað RagnhildurRíkey - Guðbjörg - Sólrún - Klara Rakel Dís Elín - Ragga - Steina - Una Heiðrún Kara Varamenn voru Freydís, Nína, Elma, Heiðdís, Friðný, Ásgerður, Ásta og Alex og komu þær allar við sögu í leiknum. Sólrún meiddist snemma í leiknum. Leikar fór 0-4 fyrir Sindra. Næsti leikur mfl. kvenna er æfingaleikur við Hött 19. febrúarþ Skrifað af G.Rós 08.02.2012 21:46Sigur á HettiLeiknir hóf keppni í Síldarvinnslubikarnum í kvöld með sigri á Hetti í Höllinni. Lokatölur 4-2 fyrir Leikni eftir að Höttur hafði leitt í hálfleik 0-1. Mörk okkar manna gerðu Norbert, Almar, Fannar og Arek. Liðið: Björgvin Snær Arek, Svanur, Siggi (Símon), Gummi (Kristó), Fannar (Beggi), Marri (Ingimar gamli), Ási (Humar), Villi, Norbert (Arnar Sær) og Almar Fyrri hálfleikur var slakur en sá síðari mun betri. Norbert slapp í gegn strax eftir hlé og jafnaði og skömmu síðar slapp Almar sömuleiðis í gegn og kom okkar mönnum yfir. Eftir klaufaskap í vörninni jöfnuðu Hattarmenn og fagnaði sá sem þar var að verki með þreföldu heljarstökki með skrúfu. En Fannar var ekki ánægður með það og setti einn í sammarann með skoti fyrir utan teig, glæsilegt mark. Arek átti síðan síðasta orðið eftir góðan undirbúning Arnars Sæs. Af Leiknismönnum áttu ungu drengirnir fínan leik, Arnar og Kristó komu sprækir inn og Gummi var fínn. Villi gamli gerði einfalda hluti en gerði þá vel. Almar og Fannar komu vel stemmdir til seinni hálfleiks eftir messu Daða í tetímanum. Hjá Hattarmönnum vantaði ansi marga og Donys fór meiddur af velli á lokamínútu fyrri hálfleiks. Stór hluti af liðinu var 2. flokks guttar. En það sem helst gladdi augað var innkoma Eysteins nokkurs Hauksonar, sem hefur að vísu stækkað nokkuð en er enn lipur með boltann. Arnar Guðmundsson dæmdi leikinn ágætlega, enda varu liðin hin prúðustu. Næsti leikur okkar manna er núna á föstudagskvöldið við KFF. Þar komum við til með að sakna Villa og 3ja flokks strákanna en þeir eru að fara suður um helgina að keppa, ma í úrslitum íslandsmótsins í Futsal. Ég vek athygli á því að Síldarvinnslumótið er inn á KSÍ-síðunni og þar mun leikskýrslan birtast.
Marri var sprækur á miðjunni en meiddist og er óvíst um þátttöku hans í leiknum á föstudagskvöld. Skrifað af má 01.02.2012 11:59Mfl. kvk. - Jafntefli gegn HettiSíðastliðin sunnudag meðan aðrir voru að gæða sér á pönnukökum á Sólarkaffinu spilaði meistaraflokkur kvenna æfingaleik við Hött á Fellavelli. Leiknar voru 3x25 mínútur. Töluverður vindur var á vellinum og spiluðu stelpurnar 1. og 3. hálfleik með vindi. Leikurinn fór 1-1. Byrjunarliðið var þannig skipað: Ragnhildur í marki, Ríkey - Guðbjörg Rós - Sólrún - Alexandra í vörn Unnur Ólöf djúp á miðjunni Sunna - Ragga - Nína - Klara kantar og miðja Heiðrún Kara sókn Varamenn voru: Andrea, Ásgerður, Ásta Kristín, Elma, Elfur, Friðný og Steina og komu þær allar við sögu í leiknum. Ragga skoraði í fyrsta hálfleik eftir undirbúning frá Ríkey. Höttur jafnaði úr hornspyrnu í miðjum 3. hálfleik. Stelpurnar spila æfingaleik við Sindra næsta laugardag (4. feb) í Fjarðabyggðarhöllinni kl. 12 og síðan við aftur við Hött í Fjarðabyggðarhöllinni sunnudaginn 19. febrúar en ekki er komin tímasetning á þann leik. Nýr þjálfari, Ólafur Hlynur Guðmarsson, tók við liðinu 13. janúar og bjóðum við hann velkominn til starfa. Skrifað af G.Rós
Flettingar í dag: 50 Gestir í dag: 21 Flettingar í gær: 251 Gestir í gær: 63 Samtals flettingar: 721160 Samtals gestir: 174097 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 02:11:25 |
Tenglar
Eldra efni
Flettingar í dag: 50 Gestir í dag: 21 Flettingar í gær: 251 Gestir í gær: 63 Samtals flettingar: 721160 Samtals gestir: 174097 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 02:11:25 |