|
Knattspyrnudeild Leiknis |
|
17.05.2012 00:20BikarleikurMyndir komnar í albúm frá leiknum í kvöld, Leiknir og Höttur. Leiknir og Höttur í kvöld á Fellavelli. Skrifað af má/jkh 15.05.2012 21:39Bikarleikur!![]() Leiknir mætir 1. deildarliði Hattar í bikarkeppni KSÍ á Fellavelli kl 20:00, miðvikudagskvöldið 16. maí. Höttur hóf tímabilið með látum og sigraði reykjavíkur Þrótt 3-1 á útivelli um sl helgi. Nú er rétti tíminn til að kippa þeim niður á jörðina! Allir að renna í Hérað að styðja Leikni! Skrifað af má 09.05.2012 12:59Fjarðaálsmót í 6. og 7. um helgina![]() Skrifað af má 05.05.2012 23:45BikarsigurLeiknir sigraði Huginn örugglega í Bikarkeppni KSÍ á Fellavelli í dag. Lokatölur 1-4 og við mun nær því að bæta við mörkum í hríðinni en Seyðfirðingar. Vilberg hóf fjörið með skallamarki strax á 4ðu mínútu. Símon bætti síðan við forskotið á 12 mínútu þegar boltinn hrökk fyrir hann í teignum. Eftir þetta slökuðu okkar menn óþarflega mikið á og Huginn átti nokkur ágæt upphaup. Á 25 mínútu tókst þeim að minnka muninn í eitt mark eftir að strækerinn þeirra slapp í gegn. Um tíu mínútum síðar braust Baldur Smári inn í teig við hitt markið og átti skot sem markvörður Hugins hélt ekki. Almar Daði mætti á staðinn og ýtti boltanum yfir línuna. Þannig stóðu leikar í tetímanum, þe 1-3. Eftir rúmlega klukkustundar leik kom Humarinn inn á fyrir Símon og það tók hann aðeins 3 mínútur að finna möskvana í Huginsmarkinu. Hann átti þá hörkuskot nokkuð fyrir utan vítateiginn sem small í stönginni og inn. Meira var ekki skorað og má meðal annars þakka Baldri Smára það. Þegar um tuttugu mínútur lifðu leiks var Svanur fyrir því að snúa sig á ökkla og var að fara af velli. Vonandi er það ekki mjög alvarlegt. Byrjunarliðið: Óðinn, Arek (Kristófer), Svanur (Ingimar), Björgvin St, Marri, Gummi, Leifur, Villi, Símon (Humar), Baldur, Almar Liðið lék ekki sérlega vel, en nýtti færin betur en oft áður. Óðinn var öruggur í markinu og var maður leiksins hjá Leikni. Hjá okkur vantaði ma Fannar sem tognaði í nára í æfingaleik 2. flokks um daginn, Hilmar sem var í prófi, Ævar, Garðar og Sissa sem hefur ekki enn fengið leikheimild, þökk sé Magyar posta. Huginsmenn börðust vel og áttu ágæta spretti. Þeir verða langt því frá eitthvað fallbyssufóður í sumar. Óðinn var öruggur í hliðinu.
Svanurinn snéri sig.
Skrifað af má 03.05.2012 17:01Bikarkeppni KSÍ á laugardaginn!
Fyrsti alvöruleikur Leiknis á tímabilinu verður háður á laugardaginn - 5. maí! Þá mætum við Huginn á Fellavelli kl 14:00, í bikarkeppni KSÍ. Ath andstæðingarnir eru ekki Huginn í Fellum, þó ætla megi það af leikvellinum, nei, nei þetta eru drengir hans Binna Skúla frá Seyðisfirði. Allir að renna í Hérað að styðja Leikni! Skrifað af má 03.05.2012 16:53Fjarðaálsmót í 5ta um helgina
Sjá leikjaplan og fleira á heimasíðu mótanna: Ellefu strákalið og tíu stelpna mæta á mótið. Fjarðabyggð verður með 4 lið í báðum flokkum, þar af gestalið með yngra árinu í 4ða flokki beggja kynja. Skrifað af má 28.04.2012 11:07Lengjubikar kvennaLengjubikar kvenna Höttur - Fjarðabyggð/Leiknir Laugardag 28.apríl kl. 14.00 Fellavöllur Þetta er síðasti leikur stelpnanna í lengubikarnum. Við hvetjum alla til að mæta á völlinn og styðja stelpurnar. Skrifað af G.Rós 26.04.2012 23:24Fjaraálsmótið í 4.fl.Um helgina er Fjarðaálsmótið í 4.fl.kk. Því miður voru engar skráningar í 4.fl.kvk. og því fellur það mót niður. Leikjaplan má finna inn á vef mótsins. Þess má geta að Fjarðabyggð/Leiknir teflir fram þremur 11 manna liðum á mótinu. Skrifað af VJ 26.04.2012 14:17Enn tap fyrir KFFLeiknir og KFF léku sína síðustu leiki í Síldarvinnslubikarnum í gærkvöld, miðvikudag. Hér á eftir fylgir frétt Fótbolti.net af leiknum, skrifuð af Þórði Vilberg eða Dodda: 1-0 Fannar Árnason 2-0 Ingi Steinn Freysteinsson 2-1 Baldur Smári Elfarsson Fjarðabyggð og Leiknir mættust í gærkvöldi í lokaleik sínum í Síldarvinnslumótinu í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði. Ljóst var fyrir leikinn að Fjarðabyggð gat tryggt sér sigur í þessu æfingamóti liðanna fyrir austan, sem haldið er af Knattspyrnudómarafélagi Austurlands, með því að ná í stig í leiknum. Leikurinn byrjaði fjörlega og ljóst að liðin ætluðu sér bæði að fá 3 stig út úr þessum leik. Strax á 6. mínútu fékk Mirnes Smajlovic framherji Fjarðbyggðar gott færi eftir hornspyrnu en Óðinn Ómarsson varði vel í marki Leiknis eins og hann reyndar gerði oft á tíðum í leiknum. Aðeins mínútu seinna komst Dejan Miljkovic svo í færi eftir mistök í vörn leiknis, en aftur sá Óðinn við honum. Leiknismenn spýttu í lófana eftir að hafa verið fremur slappir í byrjun og tóku að pressa lið Fjarðarbyggðar og það skilaði sér á 10 mínútu þegar varnarmaður Fjarðabyggðar átti fáránlega sendingu aftur á markmann sinn sem missti boltann og bolti rann í átt að marki en varnarmenn Fjarðabyggðar náðu að bjarga á línu. Eftir þetta áttu Leiknismenn talsvert af færum sem þeir ekki nýttu. Leiknismenn höfðu eftir þetta nokkra yfirhönd í leiknum, en það var þó Fjarðabyggð sem skoraði fyrsta mark leiksins en þar var á ferðinni Fannar Árnason. Eftir misheppnaða hreinsun Leiknismanna frá marki sínu, datt boltinn fyrir fætur Fannars inn í teignum og hann skoraði á öruggan hátt efst í fjær hornið. Óverjandi fyrir Óðinn í marki Leiknis! Fjarðabyggð skoraði svo annað mark á 40. mínútu en þá áttu Mirnes og Dejan flott samspil á miðjum vellinum sem endaði með glæsilegri stungusendingu Mirnesar inná Hákon Sófusson sem hljóp upp að endalínu og lagði hann fyrir Inga Stein Freysteinsson sem setti hann auðveldlega í mark Leiknis. Virkilega flott sókn. Í síðari hálfleik hélt leikurinn áfram að vera jafn og ekki hægt að tala um að annað liðið hefði yfirhöndina. Sóknir á báða bóga og hörkuspenna. Leiknismenn sóttu þó ýfið meira og á 59 mín. átti Marinó Óli Sigurbjörnsson flottan sprett upp vinstri kantinn, sem endaði með dauða færi Leiknismanna en Rúnar Pétur Hjörleifsson varði vel frá. Marinó þessi var ein sterkasti leikmaður Leiknis og átti hvað eftir annað spretti upp kantinn sem varnarmenn Fjarðabyggðar áttu í stökustu vandræðum með. Það var einmitt eftir einn slíkan sprett frá honum sem Leiknismenn skoruðu en þar var á ferðinni Baldur Smári Elfarsson með laglegu skoti úr teignum. 2-1 var staðan og leikurinn galopinn. Eftir þetta gerðist ekki mikið Fjarðabyggð varðist vel og leyfði Leiknismönnum að leika boltanum sín á milli. Leiknismenn vildu svo fá vítaspyrnu undir lok leiksins og höfðu, að mati undirritaðs nokkuð til síns máls. En 2-1 varð niðurstaðan, sanngjarn sigur Fjarðabyggðar í hörkuspennandi leik og liðið fékk bikar að leikslokum fyrir sigur í Síldarvinnslumótinu. Síðasti leikur mótsins fer fram á föstudag en þá mætast Höttur og Sindri. Staðan í mótinu: 1. Fjarðabyggð 13 stig 2. Höttur 7 stig 3. Leiknir F. 6 stig 4. Sindri 6 stig Amen Við þetta má bæta því að þetta var fyrsti leikur Sissa með Leikni og sýndi hann fína takta. Byrjunarliðið: Óðinn, Gummi, Fannar, Björgvin St og Marri, Humar, Svanur, Sissi, Villi Símon og Almar Bekkur: Baldur, Björgvin Sn, Arek, Ingimar gamli, Kristó og Arnar Sær. Fimm þeir fyrst töldu komu inn á. Baldur sett´ann eftir að hafa komið inn á í hálfleik.
Skrifað af má 24.04.2012 20:21Meira af samningamálumRétt í þessu var Una Sigríður Jónsdóttir að endurnýja samning sinn við félagið en hún skrifaði undir tveggja ára samning. Una er ein af lykilleikmönnum meistaraflokks kvenna og leikjahæsti leikmaðurinn. Una lék sinn fyrsta meistaraflokksleik 1996 og hefur síðan leikið 95 meistaraflokksleiki og skorað í þeim 31 mark. Mikill styrkur er í að hafa þennan reynslubolta áfram á vellinum. Við óskum Unu til hamingju með samninginn. Frá vinstri: Guðbjörg Rós og Una Sigríður. Skrifað af G.Rós 22.04.2012 21:48Jafntefli hjá stelpunum.Meistaraflokkur kvenna sótti í gærkvöld, laugardagskvöld, sitt fyrsta stig í Lengjubikarnum í ár. Þær lék gegn Tindastóli í Boganum á Akureyri og lauk leiknum án marka. Unu tókst ekki að finna möskvana í Boganum í þetta skiptið, þrátt fyrir nokkra leit.
Skrifað af má 22.04.2012 19:33FjarðaálsmótFjarðaálsmótum 2012 í 3ja flokki stráka og stelpna er lokið. Mótin voru nú í fyrsta sinn tveggja daga og gistu aðkomuliðin í grunnskólanum á Reyðarfirði. Foreldrar krakkanna í 3ja flokki sáu um alla vinnu við mótið; matseld, móttöku liða, sjoppurekstur, þrif og grillveislu í lokin. Allt gekk það smurt. Eftir jafna og skemmtilega keppni sigraði Þór 1 hjá stelpunum en Fjarðabyggð 1 í strákaflokki. Nánari upplýsingar á heimasíðu Fjarðaálsmótanna http://fjardaalsmot.blog.is/blog/fjardaalsmot/ Skrifað af má 22.04.2012 12:11Tap fyrir KFStrákarnir töpuðu 2-1 fyrir KF í Boganum í gær. Skoðið þetta, myndasyrpa úr leiknum og vídeó af flottu marki hjá Hilmari, beint úr aukaspyrnu: http://fotbolti.net/fullStory.php?id=124988 Byrjunarliðið: Björgvin Snær, Garðar, Björgvin St, Fannar, Marinó, Arek, Leifur, Ingimar ungi, Símon, Hilmar, Ævar, Bekkur: Óðinn, Baldur, Gummi, Ingimar gamli og Bergvin, Svanur og Almar í banni, Villi, Arnar Sær og Kristófer á Fjarðaálsmóti. Strákarnir höfnuðu í neðsta sæti í riðlinum með aðeins eitt stig. Næsti leikur er gegn KFF í Síldarvinnslumótinu á miðvikudaginn 25. apríl kl 19:00. Allir í Höllina. Hvað skyldi Símon vera að hugsa? Skrifað af má 21.04.2012 08:45LengjubikarinnBáðir meistaraflokkar félagsins halda norður í dag til að spila í Lengjubikarnum. Leikið verður í Boganum á Akureyri. Meistaraflokkur karla mætir KF kl. 17:00 en meistaraflokkur kvenna mætir Tindastól kl. 19:00. Við hvetjum alla sem eru á svæðinu til að mæta og styðja við bakið á liðunum. ÁFRAM LEIKNIR! Skrifað af G.Rós 20.04.2012 00:00SamningamálÍ kvöld endurnýjuðu þrír lykilleikmenn meistaraflokks kvenna samninga sína við félagið. Þær eru Ríkey Jónsdóttir, Ásta Kristín Guðmundsdóttir og Guðbjörg Rós Guðjónsdóttir. Allar gerðu þær samning til tveggja ára en stúlkurnar eru hópi reynslumeiri leikmanna hjá annars ungu liði Fjarðabyggðar/Leiknis. Við óskum stúlkunum til hamingju með samningana. Frá vinstri: Guðbjörg Rós, Magnús, Ríkey, Óskar og Ásta Kristín Skrifað af G.Rós
Flettingar í dag: 51 Gestir í dag: 21 Flettingar í gær: 251 Gestir í gær: 63 Samtals flettingar: 721161 Samtals gestir: 174097 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 02:32:40 |
Tenglar
Eldra efni
Flettingar í dag: 51 Gestir í dag: 21 Flettingar í gær: 251 Gestir í gær: 63 Samtals flettingar: 721161 Samtals gestir: 174097 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 02:32:40 |