|
Knattspyrnudeild Leiknis |
|
BloggKnattspyrnudeild Leiknis Fáskrúðsfirði 20.3.2010Leik frestaðLeik okkar við Einherja sem átti að fara fram á morgun sunnudag í deildarbikarnum hefur verið frestað, verður væntanlega spilaður 11.apríl. 10.3.2010Breyttur tími á aðalfundi!Aðalfundur knattspyrnudeildar UMF Leiknis 10.3.2010HallóHæhæ. Er að brasa við að breyta tenglunum hér til hliðar með flokkunum, þar sem þetta var orðið gamalt og úrelt. (Er mjög slæm tölvumanneskja) Nú vantar mig bara að þið foreldrar verðið dugleg að skoða þetta núna og endilega senda mér e-mail, með gsm nr, e-maili og fleiru sem vantar og svo auðvita ef það vantar börn inn á listana. Vantar líka alveg yfir 5.fl kk, 5 fl kvk, 6 fl kvk og 7 fl kvk og kk, hvaða börn eru í þessum flokkum?? Takk takk Kveðja Erla Björk alre@visir.is 9.3.2010GreifamótHelgina 5.-7.mars fóru 25 strákar úr 4.flokki Fjarðabyggðar/Leiknis til Akureyrar á Greifamótið. Tvö lið voru skráð til leiks A- og B-lið og stóðu sig bæði vel. Mótið hófst á föstudag með einum leik hjá hvoru liði. B-liðið tapaði 1-0 fyrir Fjölni 3. Sárt tap, enda okkar menn talsvert betri. A-liðið spilaði á móti Völsungi og vann 6-0. Á laugardag átti A-liðið fyrsta leik klukkan 09:00 á móti KS/Leiftur. Strákarnir okkar voru og unnu 0-2. B-liðið tók næst á móti Þórsurum og töpuðu aftur 1-0 og enn voru strákarnir meira með boltann og verðskulduðu betri úrslit. Þá var komið að úrslitaleik við KA um 1 sæti í riðli 2 hjá A-liðum. Leikurinn var nokkuð jafn en snöggur framherji KA manna kláraði leikinn með 2 mörkum, KA - Fjarðabyggð 2-0. Eftir leikinn var ljóst að við færum í undanúrslit og myndum mæta þar Fjölni 1. Sá leikur einkenndist af áhugaleysi hjá okkar mönnum og ekki var að sjá að við værum að spila um að komast í úrslitaleikinn. Lokatölur Fjölnir - Fjarðabyggð 3-0 og því leikur um þriðja sætið staðreynd. Seinasti leikur laugardagsins hjá B-liðinu var gegn Völsungi og endaði með sigri okkar manna 6-0 og loksins komu mörkin sem höfðu staðið á sér fram að þessu. Sunnudagurinn var tekin snemma en fyrsti leikurinn hófst klukkan 08:00 hjá B-liðinu, KA - Fjarðabyggð. Strákarnir unnu leikinn 0-2. Þetta var besti leikurinn hjá B-liðinu og var mikil barátta í okkar mönnum og ljóst að þeir ætluðu sér sigur. Næsta leik átti B-liðið líka og núna á móti Fjölni 2. Greinilegt var að þreyta var í strákunum eftir KA leikinn og töpuðu þeir 3-0. Næst var komið að leik við Þór um 3ja sætið hjá A-liðinu. Strákarnir sýndu það að þeir væru ekki komnir með nóg og vildu sigur og medalíu. Leikurinn endaði með sigri Fjarðabyggðar 0-1. Mark okkar manna kom eftir góðan samleik þar sem miðjumaður skaut sér í gegnum vörn Þórs og kláraði með góðu skoti. Þórsarar áttu gott færi í lok leiksins en við björguðum á línu og 3ja sætið var okkar. B-liðið endaði með 2-1 sigri á Fjölni 1, þrátt fyrir að þetta væri þriðji leikurinn dagsins hjá þeim. Það þýddi að B-liðið endaði í fjórða sæti en hefði átt að enda ofar miðað við frammistöðu. Hér að neðan má sjá lokastöðuna: Lokaröð A-liða: Lokaröð B-liða: 2.3.2010Lengjubikar karlaDraupnismenn hafa samþykkt breytingu á leik sem átti að vera laugard. 24. apríl. Í staðinn verður hann spilaður föstud. 23. apríl kl. 21.15. Þetta gerir okkur kleift að spila tvo leik á þremur dögum og gera góða ferð norður þessa helgi. Sun. 21. mar. 16:00 Leiknir F. - Einherji Lau. 27. mar. 16:00 Leiknir F. - Dalvík/Reynir Fös. 23. apr. 21:15 Draupnir - Leiknir F. Sun. 25. apr. 15:00 Samherjar - Leiknir F. VJ 24.2.2010Bikarkeppni KSÍ23.2.2010GoðamótGoðamótið í 5ta flokki drengja fer fram um næstu helgi. Fjarðabyggð/Leiknir er með þrjú lið skráð til leiks; A, C og E. Guðmundur Andri Bjarnason er fluttur suður og hættur með flokkinn og enn er ekki búið að ráða þjálfara í hans stað. Jóhann Atli hefur tekið að sér að fara með strákana norður, enda þekkir hann þá ágætlega eftir að hafa þjálfað suma í 6. fl síðastliðið sumar og hina sem aðstoðarmaður Gumma. Unnið er að varanlegri lausn í þjálfaramálinu. Hægt verður að fylgjast með strákunum á síðu Goðamótsins, en á henni birtast úrslit og myndir. Slóðin er; http://godamot.blog.is/blog/godamot/ Flettingar í dag: 180 Gestir í dag: 46 Flettingar í gær: 172 Gestir í gær: 58 Samtals flettingar: 450995 Samtals gestir: 124130 Tölur uppfærðar: 20.3.2010 23:02:22 |
Vafraðu umTenglar
Eldra efni Flettingar í dag: 180 Gestir í dag: 46 Flettingar í gær: 172 Gestir í gær: 58 Samtals flettingar: 450995 Samtals gestir: 124130 Tölur uppfærðar: 20.3.2010 23:02:22 |